Blár er fyrir 10 ára krakka (5. bekkur)
Driplinu er ætlað að auka tæknilega færni barna og auka áhuga á tækniæfingum.
Driplinu er skipt í þrjá aldursflokka og hver aldursflokkur ber einn lit.
- Rauður er fyrir 9 ára (4. bekkur)
- Blár er fyrir 10 ára (5. bekkur)
- Hvítur er fyrir 11 ára (6. bekkur)
Hver litur inniheldur 17 æfingar sem sýndar eru í 7 myndböndum. Æfingarnar eru settar upp þannig að iðkandi á að geta æft sig hvar sem er, jafnt inni sem úti, einn eða með fleirum.
Til að ná góðri færni í æfingum Driplsins þarf iðkandi að sinna æfingum jant og þétt yfir veturinn. Taka skal fram að þetta eru grunnæfingar í körfuknattleik og eitthvað sem ætti að vinna með í gegnum allan körfuboltaferilinn.
Hér að neðan má ná í efni til að prenta út.
Knattþrautir
- Grípa í kross 10x
- Stíga til baka 10x
- Klappa og grípa fyrir aftan bak 10x
Knattrak á staðnum
- Inn og út 10x hægri og 10x vinstri
- Kónguló 20x snertingar
- Áttan 10x inn að framan og 10x inn að aftan
Knattrak á ferð
- Milli fóta 6 ferðir
- Fyrir aftan bak 6 ferðir
- Inn og út stefnubreyting 6 ferðir
Sniðskot
- Stunga og sniðskot undir 3x hægri og 3x vinstri
- Sniðskot undir, skora 6x á 30 sek
Skot
- Formskot 10x
- Grípa og skjóta 10x
- Víti hitta 3 af 5
Sendingar
- Gabb og sending 10x hægri og 10x vinstri
- Frákast sending 10x
Vörn
- Loka úti 6x hægri og 6x vinstri
Hér er hægt að horfa á öll myndböndin í einu.
Um Driplið
Driplið er tækniþjálfun sem er ætlað krökkum á aldrinum 9-11 ára. Hægt er að nálgast Driplið á þessari síðu og á YouTube rás KKÍ. Driplinu er ætlað að auka tæknilega færni barna og auka áhuga á tækniæfingum.
Driplinu er skipt í þrjá aldursflokka og hver aldursflokkur ber einn lit.
Hver litur inniheldur 17 æfingar sem sýndar eru í 7 myndböndum. Æfingarnar eru settar upp þannig að iðkandi á að geta æft sig hvar sem er, jafnt inni sem úti, einn eða með fleirum.
Hugmyndin í kringum litina rauður, blár og hvítur er vísan í íslenska fánann. Ætlast er til þess að þjálfarar hvers flokks leggi verkefnið fyrir sína iðkendur á æfingu og hvetji þá til að æfa sig utan æfingatíma. Í lok vetrar ættu allir iðkendur að vera búnir að ná að framkvæma hverja æfingu vel.
Þegar að þjálfarar telja að iðkendur hafi náð nægilegri færni hefur þjálfari stöðumatsæfingu þar sem iðkendur geta unnið sér inn armband með tilteknum lit. Það er þjálfarans að sjá til þess að iðkendur verði búnir að æfa sig það vel um veturinn að þeir geti framkvæmt æfingar og allir ættu að geta fengið armbönd. KKÍ mun senda félögum armböndin.
Athugið! Þeir iðkendur sem eru 10 ára mega vinna sér inn bláa og rauða armbandið en þau mega ekki reyna við hvíta fyrr en þau eru orðin 11 ára. Sama gildir um 11 ára þau mega vinna sér inn bláa og rauða armbandið. 9 ára mega bara vinna sér inn rauða armbandið.
Hægt er að líta á Driplið sem einhverskonar námsskrá fyrir iðkendur og því kjörið verkfæri fyrir þjálfara að vinna með. Hugmyndin er að Driplið verði undanfari fyrir Úrvalsbúðir KKÍ og þyrftu þá þátttakendur Úrvalsbúða að vera búnir að fá viðeigandi armband áður en þeir mæta í Úrvalsbúðir. Þetta hjálpar þjálfurum að velja þá iðkendur sem eiga heima í Úrvalsbúðum.