Driplið · Rauður (9 ára)


Rauður er fyrir 9 ára krakka (4. bekkur)

Driplinu er ætlað að auka tæknilega færni barna og auka áhuga á tækniæfingum.
Driplinu er skipt í þrjá aldursflokka og hver aldursflokkur ber einn lit.

Hver litur inniheldur 17 æfingar sem sýndar eru í 7 myndböndum. Æfingarnar eru settar upp þannig að iðkandi á að geta æft sig hvar sem er, jafnt inni sem úti, einn eða með fleirum.

Til að ná góðri færni í æfingum Driplsins þarf iðkandi að sinna æfingum jant og þétt yfir veturinn. Taka skal fram að þetta eru grunnæfingar í körfuknattleik og eitthvað sem ætti að vinna með í gegnum allan körfuboltaferilinn.

Hér að neðan má ná í efni til að prenta út.

 Rauður tjekklisti

Driplið Veggspjald

 

Knattþrautir

  • Slá í bolta 20x
  • Kringum heiminn 2×5 í hvora átt
  • Kringum fætur í áttu 2×5 í hvora átt

 

Knattrak á staðnum

  • Dripla á staðnum 10x hægri og 10x vinstri
  • Krossa yfir 10x
  • JÓJÓ dripl 10x hægri og 10x vinstri

 

Knattrak á ferð

  • Svig 6 ferðir
  • Hika 6 ferðir
  • Krossa yfir 6 ferðir

 

Sniðskot

  • Hægri 6x og vinstri 6x
  • Frá vítalínu, skora 6x á 30 sek

 

Skot

  • Formskot 10x
  • Formskot, hopp stopp 10x
  • Víti hitta 2 af 5

 

Sendingar

  • Brjóstsendingar 10x
  • Gólfsendingar 10x

 

Vörn

  • Varnarrennsli 4 hringir (kassi 4×4)

Hér er hægt að horfa á öll myndböndin í einu

Aðalstyrktaraðili
Samstarfsaðilar KKÍ